Sonny in his Sunday best....

Kyndilberi Snilldarinnar

10.10.2007 11:14:38 / santino

Hver er bestur?

Fifa hefur sett 30 menn í pott um valið á knattspyrnumanni ársins. Þeir eru:

Gianluigi Buffon (Ítalíu), Fabio Cannavaro (Ítalíu), Petr Cech (Tékkland), Cristiano Ronaldo (Portúgal), Deco (Portúgal), Didier Drogba (Fílabeinsströndinni), Michael Essien (Ghana), Samuel Eto'o (Kamerún), Gennaro Gattuso (Ítalíu), Steven Gerrard (Englandi), Thierry Henry (Frakklandi), Juninho (Brasilíu), Káka (Brasilíu), Miroslav Klose (Þýskalandi), Philipp Lahm (Þýskalandi), Frank Lampard (Englandi), Rafael Marquez (Mexíkó;) Lionel Messi (Argentínu), Alessandro Nesta (Ítalíu), Andrea Pirlo (Ítalíu), Franck Ribery (Frakklandi), Juan Roman Riquelme (Argentínu), Ronaldinho (Brasilíu), Wayne Rooney (Englandi), John Terry (Englandi), Carlos Tévez (Argentínu), Lilian Thuram (Frakklandi), Fernando Torres (Spáni), Ruud van Nistelrooy (Hollandi), Patrick Vieira (Frakklandi).

 Spurt er:

Hver hreppir hnossið, hvert er yðar persónulega val og hver á alls ekki heima á þessum lista?


» 7 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 17:36:06 / santino

Tjaldútilega never again...

Þetta var bara ógeð. Ég er alveg búinn að sjá í gegnum þetta rugl um að tjaldútilegur séu eitthvað skemmtilegar. Þetta er BARA vesen. Skoðum þetta aðeins nánar:

  • Það tekur lágmark 2 daga að skipuleggja útilegu með innkaupum, reddingum, fá eitthvað lánað og allan tímann er maður með þessa ömurlegu tilfinningu að maður sé að gleyma einhverju.
  •  Klukktími fer í að finna "rétta" staðinn fyrir tjaldið og svo fer lágmark annar klukkutími í að tjalda tjaldi sem verður alltaf skakkt og bogið sama hvað maður reynir.
  • Karma sér alltaf til þess að a.m.k. eitt af þessu þrennu komi fyrir þegar tjaldi er tjaldað: A)Ekki til nógu margir tjaldhælar. B) Rennilásinn á tjaldinu er ónýtur C) A.m.k. ein tjaldsúla er horfin, bogin eða brotin.
  • Til að geta fengið sér kaffisopa þarf að sjóða vatn í potti -tvisvar- (afþví að potturinn er svo lítill) og svo þarf að hella vatninu í gegnum kaffitrekt með klósettpappír útafþví að kaffisíur gleymdust og bíða og bíða og bíða og bíða, aðeins til þess eins að fá vont kaffi með svo miklum korgi að maður verður umhella í annan bolla með klósettpappír sem síu til að geta loksins fengið langþráð kaffi sem þá er orðið kalt og ódrekkandi af öllum prócessnum.
  • Plasthnífapör. I rest my case.
  • Sönn saga úr þessari útilegu: Þegar kom að því að reyna að fara að sofa byrjar djammliðið í 50 metra fjárlægð að syngja "Hjálpaðu mér upp mér finnst ég vera að drukkna" til að ganga 2 um nóttina, en það skipti svosum litlu máli því við gátum hvort eð er ekki fest svefn fyrir nístandi kulda. Við reyndum allt, fara úr öllum fötunum, fara í öll fötin, sofa undir einni sæng... you name it. Um kl.3 ranka ég við mér úr limbóinu við það að skógarþröstur hafði villst inní fortjaldið (vorum í hústjaldi) og flögraði þar um eins og óður. Það var bara eins og ég væri staddur í endurgerð af Birds eftir Hitchcock, en ég náttúrulega neyddist til að fara framúr, skjálfandi úr kulda með tilheyrandi tannaglamri að reyna reka fuglinn út. Eftir að vera búinn að brasa við þetta í dágóðan tíma, og vera búinn að opna stóru hurðina á tjaldinu, niðurlægir helvítis fuglinn mig með því að trítla blístrandi út um pínulítið gat í hinum endanum á tjaldinu. Þá ákvað ég að fara að pissa. Ég þarf alltaf að pissa á nóttunni í útilegu, ALLTAF! Þarna hljóp ég eins hálviti, tennurnar glamrandi með svo miklum hávaða að það hefði sómt sér vel sem hljóðeffektar í Jarðskjálftamynd sem gerist í postulínsbúð, á kamarinn að reyna míga eins Parkinsonssjúklingur á lokastigi. Fer tilbaka í tjaldið og reyni að sofna, og ranka aftur úr limbóinu um  kl. 4, við að Heiddi litli vaknar til að fá pela. Hann hafði sofið eins og grjót hingað til og ekki kennt sér meins vegna kuldans sem betur fer. En hann fúlsar við skítköldum pelanum, þannig að ég rek Heiðu greyið á lappir til að hita pelan og hún þarf síðan að gera annan því að drengurinn er ekkert að sofna. Hún stekkur þá á kamarinn og tekur eftir að það er hrím á útileguborðinu!!! Heiddi tekur klukkutíma að sofna aftur og mig annan hálftíma. Ég sofnaði um hálf sex. Komumst af því þegar við komum heim að það hafði verið þriggja stiga FROST um þessa júnínótt!!! Ég mun seint gleyma þessum viðbjóði og það mun líða mjög langt þangað til að ég fari í tjaldútilegu aftur.

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.06.2007 10:54:28 / santino

"Where there's House music, there's always an Akureyringur".

Það var alveg dásamleg upplifun að fara á Desyn Masiello í Sjallanum. Mér leið á augnablikum eins og maður væri einhversstaðar annarsstaðar en á Akureyri, enda hefur annar eins atburður ekki sést á hér. Það er líka svo gaman hvað það er lagður mikill metnaður í þetta...og gaman að flottustu klúbbakvöldinn eru á Akureyri. Enda hef ég alltaf sagt að Akureyri sé House höfuðborg Íslands. Ef það er House tónlist í gangi, þá er alltaf einhver Akureyringur nálægt. Það er bara þannig. En lífið er bara dásamlegt og ég er bara enn í fríi og verð til 10. Júlí eða eitthvað álíka. Mjög gott að vera í fríi, en það verður líka fínt að fara að vinna aftur. Ég er búinn að gera slatta í fríinu svosum að fara að veiða, fara í sund með fjölskyldunni og reyna að semja músík þó að maður hafi engan aga í halda sér við efnið. Maður endar alltaf á því að horfa á Video. En ég ætla að nýta þessa seinustu daga í fríinu. Er einmitt að fara í útilegu um helgina í Vaglaskóg og það á eitthvað að fara að veiða líka. Ætli maður fari ekki í Ljósavatn á laugardag og Vestmannsvatn á sunnudag. Vona bara að það verði skaplegt veður, allavega engin vindur svo að ég geti æft mig með fluguna. Á fimmtudaginn verð ég síðan að spila í No Request á Voice FM 98,7 og mig hlakkar bara helvíti mikið til, enda er ég búinn að vera sanka að mér nokkrum klikkuðum tónum undanfarið. Þetta sett á eftir að ooza ást og hamingju. Þannig að endilega leggið við hlustir.

» 13 hafa sagt sína skoðun

19.05.2007 23:23:38 / santino

Samstæðisstjórnin

Ég er hæstánægður með það að D og S séu að spekúlera að sænga saman næstu 4 árin. Þetta er nákvæmlega það sem ég vildi, og þegar maður spáir í því.... það sem flestir vildu. Allavega er samanlagt fylgi þessara flokka 63.4 %  þannig að meirihluti þjóðarinnar er væntanlega sáttur með þessa útkomu. Ég vona bara að spár manna um að þessi stjórn verði of hægrisinnuð rætist ekki, og ég eiginlega trúi því ekki að Sólrún, Össi & co. láti D vaða uppi með einhverja vitleysu, enda hefur mér alltaf fundist Haarde vera jafnaðarmaður inn við beinið. Þetta gæti orðið alveg fyrirtaks hjónaband þar sem Geir er fyrirvinna "heimilisins" og Sólrún húsmóðirin sem tryggir að öll "börnin" fái nesti í skólann sem hæfir hverjum og einum og skutli þeim til læknisins og heimsæki ömmu og afa sem búa saman í herbergi á elliheimilinu.


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 21:34:11 / santino

Ótrúlegt

 Hef ekki bloggað síðan einhverntíman í janúar en samt hafa 8 manns heimsótt þessa síðu í dag. Hefði nú haldið að fólk væri nú hætt að koma hingað en nei, 8 aðilar. Tvær, jafnvel þrjár hefðu nú ekkert komið á óvart en ég er ansi hissa á 8, og eiginlega meira forvitinn um hverjir þetta eru. Hver eru þið?

» 5 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 20:01:36 / santino

Uppgjörið

Lög ársins 2006 TOPP 20

1.       Jupiter room – Digitalism

2.       Freak Me – LXR, Andrea Doria (Andrea Doria Dub)

3.       Play Pig – Underworld (Buick Project mix 1 & 2)

4.       Played Runner – Booka Shade, DJ T

5.       1983 – Paolo Mojo (Eric Prydz Remix & Original)

6.       Rej – Amé

7.       In White Rooms – Booka Shade

8.       Mallflowers – Gus Gus

9.       Jal to Tokyo – Underworld (Paul Woolford dub & vocal mix)

10.   Ruckus – Paolo Mojo (Buick Project mix)

11.   Kill 100 – X-Press 2 (Carl Craig Remix)

12.   Digitalism in Cairo – Digitalism

13.   Doppelwhipper(Live) – Gabriel Ananda

14.   The End Of It All – John Tejada

15.   This is Miami – Sander Kleinenberg

16.   Sedna - 16 bit lolitas

17.   Exceeder – Mason

18.   Yeah Yeah – Bodyrox (Piers & Bridges mix & D.Ramirez mix)

19.   Last Rythm – Last Rythm (Martjin Ten Velden Mix)

20.   You Wont Change – Roman Salzger, Manuel Tur (Day edit)

 

(Topp 100 uppi, til vinstri)

 

Plötur ársins 2006

 

1-2. The Garden - Zero 7

1-2. The Warning - Hot Chip

3. Movements - Booka Shade

 

Artistar ársins 2006

 

1. Booka Shade

2. Carl Craig

3. Nic Fanciulli (Buick Project)

 

DJ-ar ársins 2006

 

1. Desyn Masiello

2. Dj Sveinar :haha:

 

Atburðir ársins 2006

 

1. Daft Punk á Global Gathering

2. Thomas Bangalter á NASA

3. Desyn Masiello á NASA

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 22:52:40 / santino

Global Gathering!!!

Farinn í partý...bless á meðan...


» 10 hafa sagt sína skoðun

16.07.2006 15:30:27 / santino

Þvílíkt kvöld!!! Alvöru klúbbastemmning á Akureyri!!!

Þetta var algjör snilld í Sjallanum í gær, Shit hot dansstemmning á heimsmælikvarða. Breytingarnar voru flottar, búið að hólfa af og setja svartar drapperingar hér og þar sem gerði Sjallann alveg yndislega hráan og clubby. Ég og Skari byrjuðum kvöldið og síðan tók Leibbi við rétt fyrir tvö og rúllaði kvöldinu upp með einu af hans bestu settum sem ég hef heyrt frá þessum meistara. Rúmlega 400 manns í geggjaðri stemmningu og gleði og var ekki að heyra annað á fólki en að því fyndist þetta allt saman bara helvíti flott. No Request og Voice eiga fálkaorðuna skilið fyrir þetta kvöld, allavega lykillinn að
Akureyrarbæ.

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.07.2006 14:35:54 / santino

Clubland í Sjallanum!!!

Jæja, nú er um að gera að mæta í Sjallann á laugardagskvöldið í shit hot dansstemmningu eins og hún gerist best útí heimi! Heimsborgarar mæta í Sjallann en landsbyggðarpakkið situr heima að taka slátur!


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.06.2006 09:58:20 / santino

Tilkynning

Bítskiptandi kyntröllið ykkar verður á dátanum á laugardagskvöldið ásamt meistara Leibba. Geri ráð fyrir að grúppíurnar mínar mæti sem og "liðið" til að tjútta við tóna fyrirliðans. Voff voff.

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 12:03:54 / santino

Live @ Voice 98.7

.....í kvöld um 21:30...


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.06.2006 00:52:40 / santino

DJ Sveinar og DJ Leibbi saman í eina sæng.

Verð á Dátanum annað kvöld 09.06.06 ásamt Leibba að spila tónlist fyrir fólk sem finnst gaman að dansa. . Taktblandaði geisladiskurinn "The Reason" verður gefin meðan birgðir endast. Á honum má finna snjalla tónlist. :lol:

1. Tides - Beanfield(C´s movement #1)(Carl Craig Remix)

2. The Tip - King Roc(Tom Neville Remix)

3. Inhale - Full of Grace(Dirk Dreyer Remix)

4. Mind goes Blank - Audiofly X

5. Komputers are the Devil - Terry Grant(Hope for the Human Race Remix)

6. Swiss on Rye - My My

7. In White Rooms - Booka Shade

8. Attack!Attack! - Deepgroove(Bobby Lorenz & Kristoph Lock In Rework)

9. Ruckus - Paolo Mojo(Buick Project Remix)

10. La Luna - Andy Cato(Main Mix)

11. Sedna - 16 Bit Lolitas

12. Sirocco - Hernan Cattaneo & John Tonks(Nodding Dog Mix)

13. Jupiter - Kris Menace


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.05.2006 20:47:01 / santino

Bwahahahahaha!!!!!

Þetta er ægilegt....:haha:

http://www.hi.is/~hrj2/disrobics.wmv


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 10:44:27 / santino

Quality Control Error

Svo virðist sem 5-6 diskar af hinum forláta taktblandaða geisladisk "Ekki hugsa, Bara Dansa.." hafi verið tómir. Kemur það til vegna bráðfyndins misskilnings milli mín og gó-gó píu no. 1. ´Ég sagði "Nenniru að skrifa restina af diskunum" og hún heyrði "Nenniru að skrifa Á restina af diskunum" Þannig að hún skrifaði bara á þá með penna, en brenndi þá ekki :lol: Þannig að ef þú lesandi góður átt tóman disk, þá geturu ef þú nennir komið með hann til mín í vinnuna (Penninn á Glerártorgi) og ég mun vera með nokkra heila til skiptanna;). Annars væri gaman að fá feedback frá þeim sem fengu heil eintök, góð ráð og gagnrýni eru mjög vel þegin.


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 19:14:07 / santino

Ekki Hugsa...Bara Dansa..

Gefinn verður forláta taktblandaður geisladiskur þeim sem mæta snemma eða á meðan birgðir endast. Nefni ég hann "Ekki Hugsa...Bara Dansa.." og er bara nokkuð góður þó að nokkrar skiptingar hefðu mátt takast betur. En allavega er þetta diskur með eðal tónum og er lagalistinn eftirfarandi:

1. A Bit Patchy - Switch (Eric Prydz Remix)

2. Adobe - Tom De Neef (Bush II Bush Remix)

3. I See You - Sissy (Micah´s only when im visible mix)

4. Last Rythm - Last Rythm (Martijn Ten Velden Remake)

5. Mediterrenean Lust Dance - Samuel Blacher f/ Maor (dub version)

6. He Is - Copyright f/ Song Williamson (Ferrer & Sydenham Inc.Vox Mix)

7. Since I Found You - Phatjak (Mashtronic Remix)

8. Bleepz 4 Freeks - Elektroboogie

9. Your Mistake - Robbie Rivera f/ Marnie

10. Who´s Your Daddy - Benny Benassi (Electro Extended mix)

11. The B Side - Pierre J

12. Love Sensation - Eddie Thoneick & Kurd Maverick ( Eddie T.´s sensation mix)

13. Dream On - Shiloh ( Luke Chable Remix)


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3